<$BlogRSDUrl$>

27.5.05

Heimsins yndislegasti maður á 31 árs afmæli í dag. Vinsamlegast syngið eftirfarandi, hvar sem þið eruð stödd, í vinnunni, heima eða annars staðar:

Hann á afmæli í dag,
hann á afmæli í dag,
hann á afmæli hann Maggi,
hann á afmæli í dag.

Hann er 31 árs í dag,
hann er 31 árs í dag,
hann er 31 árs hann Maggi,
hann er 31 árs í dag!

Hrópið síðan eitt langt vei. Núna: Veeeeeeeeiiiiiiiiii!

25.5.05

Dreymdi í nótt að skosku hálöndin hefðu orðið fyrir valinu. Sjáum hvað setur. Við erum alla vega búin að útiloka Pýreneafjöllin og Egyptaland.

22.5.05

Gengum á Arnarfell við Þingvallavatn í dag. Fín gönguleið, létt en tekur þó nógu langan tíma til að fá fína líkamsæfingu út úr henni.

Það styttist í sumarfríið okkar. Við verðum fyrstu vikuna í Stokkhólmi en höfum ekki ráðstafað öðru. San Fransisco, Pýreneafjöllin, New York, skosku hálöndin og Egyptaland er meðal þess sem eru að valda okkur óyfirstíganlegum valkvíða.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?